Fréttir

Franska kvikmyndahátíðin hefst í Bíó Paradís!

21/01/2026

Franska kvikmyndahátíðin verður haldin í tuttugasta og sjötta skiptið í Bíó Paradís dagana 23. janúar til 1. febrúar 2026!

Nánar á vef Bíó Paradís hér

Kvikmyndagoðsögnin Isabelle Huppert mætir til leiks sem heiðursgestur Frönsku kvikmyndahátíðarinnar í Bíó Paradís. Hún leikur Ríkustu konu heims, glæsilegri og beittri mynd þar sem auður, völd og vinátta stíga hættulegan dans og jafnvel ríkasta kona heims getur misst jafnvægið (í háum hælum).

Bíó Paradís frumsýnir einnig Stórvirkið, sjónrænt verk þar sem djarfur arkitektúr og París rekast á með neistum. Á dagskrá eru einnig Útlendingurinn byggð á bók Albert Camus, Píanóslysið þar sem Adèle Exarchopoulos fer á kostum í meinfyndinni ádeilu og Litla systir, hlý og djörf saga um að verða fullorðin í París.

Boðið verður uppá eina teiknimynd fyrir alla fjölskylduna, föstudagspartísýningar, vínsmökkun, Barsvar ekki láta þig vanta í franska veislu í Bíó Paradís!

Franska kvikmyndahátíðin í Bíó Paradís býður upp á það besta og skemmtilegasta, sem frönsk kvikmyndalist hefur upp á að bjóða.

Viðburðir hátíðarinnar á Facebook:

La Haine – Föstudagspartísýning

Maya, gefðu mér titil – fjölskyldusýning og veitingar

BarSvar með Níels Thiebaud Girerd

The Stranger og vínsmökkun

Amélie -Föstudagspartísýning

Souleyman´s Story – val menntaskólanema

Cléves – spurt og svarað með leikstjóra og höfundi

Maya, gefðu mér titil – lifandi talsetning á íslensku

The Great Arch og spjall um arkitektúr

Skoða fleiri fréttir