Stórkostleg mynd í leikstjórn Ken Loach sem segir sögu fjölskyldu í Newcastle sem er skuldum vafin eftir fjármálakreppuna. Fjölskyldufaðirinn vonast til þess að fjárhagurinn vænkist þegar hann byrjar í nýrri vinnu sem sjálfstætt starfandi sendill.
Loach er þekktur fyrir hreinskilna skoðun á samfélaginu og þeim sem minna mega sín og Sorry We Missed you er ein allra sterkasta mynd hans að mati gagnrýnenda, sem skilur eftir sammannlegar tilfinningar eftir hjá áhorfandanum, – ein besta kvikmynd ársins sem keppti um Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes 2019
Hægt er að leigja SORRY WE MISSED YOU á VOD leigu Símans og Vodafone með íslenskum texta!
Skoða fleiri fréttir