Fréttir

Stockfish kvikmyndahátíðin fer fram í Bíó Paradís 1.-11. mars!

22/02/2018

Kvikmyndahátíðin Stockfish Film Festival & Industry Days verður haldin í fjórða sinn dagana 1. til 11. mars 2018 í Bíó Paradís.

Stockfish Film Festival & Industry Days er kvikmynda- og ráðstefnuhátíð fagfólks í kvikmyndabransanum og er haldin í samvinnu við Bíó Paradís og öll fagfélög í kvikmyndagreinum á Íslandi. Hátíðin er haldin árlega í byrjun mars og stendur yfir í 11 daga. Með hátíðinni var Kvikmyndahátíð Reykjavíkur endurvakin undir nýju nafni en hún var síðast haldin árið 2001 og var upphaflega sett á laggirnar árið 1978. Allt kapp er lagt á að starfrækja Stockfish á faglegan, gagnsæjan og lýðræðislegan hátt með stjórn skipaðri fulltrúum frá fagfélögum kvikmyndaiðnaðarins.

Dagskráin í ár er stútfull af áhugaverðum og spennandi kvikmyndum þar á meðal nýjasta kvikmynd rússneska leiksjórans Andrey Zvyagintsev (Leviathan) Loveless.

Allar upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar má nálgast á heimasíðu Stockfish!

English

Stockfish Film Festival in Reykjavík is the film industry’s festival in Iceland. It was founded in 2015, as a reincarnation of the Reykjavík Film Festival (Kvikmyndahátíð í Reykjavík), which was established in 1978.

The festival aims to create a platform in Reykjavík to encourage collaboration between domestic and international film communities and gives the general audience an opportunity to see some of the most up-and-coming art-house films in the world.

The festival takes place during the 1st – 11th of  March 2018 and is held in collaboration with Bíó Paradís, Icelandic Film Centre and all of the film professional associations in Iceland; The Film Director’s Guild of Iceland, Association of Icelandic Film Producers, Society of Women in Filmmaking (WIFT), Icelandic Actors Guild, The Icelandic Cinematographers Society and The Icelandic Dramatists’ Union.

For more info check out the Stockfish website!

 

Skoða fleiri fréttir