Fréttir

Svartir Sunnudagar: Black Narcissus 

04/02/2016

Myndin fjallar um tilraun nunna til að koma upp klaustri í hallarbyggingu í fjallabyggð í Himanlayafjöllunum. Það er undir lok Black Narcissus, þegar regndropar byrja að falla á frumskógarblað og það er orðið ljóst að draumar persónanna ná ekki að rætast að áhorfandann fer að gruna að sjónrænt hafi hann verið blekktur. Það fæst staðfest í lokin honum til mikillar undrunar. Tökumaður myndarinnar, Jack Cardiff, er einn af brautryðjendum Technicolour kvikmyndatökutækninnar og halaði myndinni inn Óskarsverðlaun ásamt leikmyndagerðarmanninum. Dúndur mynd um átök holds og anda á Svörtum Sunnudegi, 7. febrúar kl 20:00!

Skoða fleiri fréttir