Fréttir

VOD mynd vikunnar: The Guilty

06/11/2019

Danskur thriller einsog þeir gerast bestir! Aðgengileg á VOD leigu Símans og Vodafone með íslenskum texta!

Lögreglumaðurinn Asger Holm er kominn í skrifstofudjobb við að svara símtölum í neyðarlínuna og er ekki sá þolinmóðasti í bransanum. Dag einn fær hann símtal frá konu sem hefur verið rænt og það reynir á taugar hins fyrrverandi rannsóknarlögreglumanns þegar slóðin virðist teygja sig dýpra í glæp sem hann óraði ekki fyrir. Þessi spennutryllir mun halda þér á sætisbrúninni fram á síðustu mínútu!

HINN SEKI hlaut áhorfendaverðlaunin á bæði Sundance og Rotterdam, og hefur verið sýnd á sumum stærstu kvikmyndahátíðum heims við einróma lof gagnrýnenda.

Skoða fleiri fréttir