Climbing Iran – Sérsýning á vegum Íslenska Alpaklúbbsins

Sýningatímar

Engar sýningar

  • Tegund: Heimildamynd/Documentary
  • Leikstjóri: Francesca Borghetti
  • Ár: 2020
  • Lengd: 53
  • Land: Ítalía
  • Frumsýnd: 17. Nóvember 2022
  • Tungumál: Enska

Myndin “Climbing Iran” (2020) fjallar um klifurkonuna Nasim Eshqi frá Íran sem er frumkvöðull í útiklifri kvenna þar í landi. Í Íran mega konur aðeins klifra innandyra á ákveðnum tímum meðal annarra kvenna. Nasim ákvað að fara sínar eigin leiðir í baráttunni gegn harðstjórn klerkaveldisins í hennar landi og setti upp sína eigin alpaleið í Persnesku fjöllunum og á sér draum um að opna nýja klifurleið í Ölpunum.

Íslenski Alpaklúbburinn sýnir þessa mynd til að sýna írönskum klifurkonum samstöðu. Allur ágóði af sýningu myndarinnar hér mun renna til samtaka sem berjast fyrir mannréttindum í Íran.

  • Athugið að Bíó Paradísar árskort, klippikort, frímiðar gilda ekki á þessa sérsýningu!

English

“Climbing Iran” (2020) is a documentary about Nasim Eshqi, a professional Iranian climber and women’s rights activist. Nasim is the pioneer of outdoor climbing in Iran, where women are supposed to train indoors only, during set hours, and only among other women. Nasim decided to go beyond the barriers imposed on women in her country, setting up her own alpine route on Persian rock. She teaches other young women how to gain independence through climbing, and has a dream: open a new route on the Alps to become part of the climbing elite.

The Icelandic Alpine Club is showing this film in solidarity with Iranian women. All proceeds from this event will benefit human rights organisations working in Iran.

  • Please note that Bíó Paradís season-cards, punch-cards, free tickets are not valid for this special screening!

Aðrar myndir í sýningu