Í skóm drekans

Sýningatímar

Engar sýningar

  • Tegund: Heimildamynd/Documentary
  • Leikstjóri: Hrönn Sveinsdóttir, Árni Sveinsson
  • Handritshöfundur: Hrönn Sveinsdóttir, Árni Sveinsson
  • Ár: 2002
  • Lengd: 94 mín
  • Land: Ísland
  • Frumsýnd: 24. September 2022
  • Tungumál: Íslenska
  • Aðalhlutverk: Hrönn Sveinsdóttir ofl.

Vegna fjölda áskorana verður boðið upp á aukasýningar á heimildamyndinni Í SKÓM DREKANS!

Það var á ári drekans (2000) sem Hrönn fær þá flugu í kollinn að gera heimildarmynd um fegurðarsamkeppni. Eins og svo margir, þá velti hún því fyrir sér hvað fólk gerði sem tæki þátt í slíkri keppni, það er hvernig það færi að því að „keppa“ í fegurð. Eina leiðin til að komast að því er að kynnast því af eigin raun. Hún skráir sig til keppni í nýrri fegurðarsamkeppni (Ungfrú Ísland.is) og tekur fljótlega stefnuna á sigur – því eins og hún segir sjálf; „aðalatriðið er ekki að vera með, heldur að vinna“.

Daginn fyrir frumsýningu myndarinnar var lögbann sett á myndina en æ síðan hefur hún haft áhrif í tengslum við tjáningarfrelsi og friðhelgi einkalífs samkvæmt skilgreiningu íslenskra laga.

Í Skóm Drekans var sýnd víða um heim og vann Edduverðlaunin sem besta íslenska heimildarmyndin árið 2002.

Aðrar myndir í sýningu