Jón Oddur og Jón Bjarni

Sýningatímar

Engar sýningar

  • Leikstjóri: Þráinn Bertelsson
  • Ár: 1981
  • Lengd: 95
  • Land: Ísland
  • Aldurshópur: Allur aldur
  • Tungumál: Íslenska

Tvíburarnir Jón Oddur og Jón Bjarni eru ósköp venjulegir frískir strákhnokkar. Stundum eiga þeir til að vera ansi uppátektarsamir – og jafnvel óþekkir – en með barnslegu sakleysi sínu bræða þeir auðveldlega hvers manns hjarta. Í fjölskyldunni eru einnig Anna Jóna hálfsystir sem er illa haldin af „unglingaveikinni“ og Magga litla systir sem á í mesta basli með koppinn sinn. Soffía ráðskona er einnig ómissandi hluti fjölskyldunnar en hún gætir drengjanna meðan foreldrarnir eru í vinnunni. En þótt þeir bræður séu svo lánsamir að eiga góða fjölskyldu eru það ekki allir. Jói hrekkjusvín sem býr á hæðinni fyrir neðan er ekki öfundsverður þegar móðir hans er að skammast og rífast í honum. Margar skemmtilegar persónur koma einnig við sögu, svo sem Lárus sem er vinur tvíburanna, Selma systir hans og margar fleiri.

Myndin er sýnd í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands.

 

Aðrar myndir í sýningu