Kurt verður vondur

Sýningatímar

Engar sýningar

  • Tegund: Barnamynd
  • Leikstjóri: Rasmus A. Sivertsen
  • Ár: 2008
  • Lengd: 74
  • Land: Noregur
  • Aldurshópur: 8 ára +
  • Tungumál: Norska

Einn daginn uppgötvar Kurt það að samfélagið ber litla virðingu fyrir þeim sem vinna á lyftara. Konan hans er metnaðarfullur arkitekt og nágranni hans er læknir. Jafnvel hans eigin börn eru ekki ánægð með starfsvettvang hans þó svo að hann sé vinsæll á meðal vinnufélaga sinna.

Þrátt fyrir að elska vinnuna sína, hættir Kurt að vinna á lyftara með það að markmiði að komast hærra í samfélaginu. Hann vill verða ríkur með því að verða læknir eða jafnvel forsætisráðherra. En honum gengur frekar illa að ná þessum markmiðum sínum og því verður hann – vondur.

Stórskemmtileg mynd sem tilnefnd var fyrir besta handritið á hinum norsku Amanda verðlaunum sem og að hún var tilnefnd sem besta kvikmyndin á Annecy International Animated Film Festival 2009. Sýnd með íslenskum texta.

Myndin er sýnd í samstarfi við Norska Sendiráðið í Reykjavík.

Aðrar myndir í sýningu