Prince

Sýningatímar

Engar sýningar

  • Tegund: Drama
  • Leikstjóri: Sam de Jong
  • Ár: 2015
  • Lengd: 78
  • Land: Holland
  • Aldurshópur: 13 ára +
  • Tungumál: Hollenska

Í jaðri bæjarins er heitt. Drengir sem eiga peninga eru vinsælir, sérstaklega þeir sem keyra um á Lamborghini því þeir eiga virðingu vísa. Sagan inniheldur bæði kaldhæðni og grótesku og segir sögu ungra drengja sem hanga saman á götum úti, bryðjandi graskersfræ að tala saman um mótorhjól, stelpur og Rolex úr.

Einn þeirra er hinn sautján ára Ayoub sem er ástfangin af Lauru. Hún sendir honum tælandi augnaráð þegar hún gengur framhjá, sem reynist vera innistæðulaust daður. Kærasti hennar er einn mesti töffarinn á svæðinu. Hvernig í ósköpunum getur Ayoub vakið athygli á sér og unnið ást Lauru? Hann á enga peninga, hann á ekki einu sinni sitt eigið herbergi og faðir hans er á götunni. Hann verður að gera eitthvað í málunum. Þá kemur klikkaði gæinn á fjólubláa Lamborghini bílnum til sögunnar, og þá fyrst verða hlutirnir erfiðir!

Aðrar myndir í sýningu