Saga Borgarættarinnar – 100 ára

Sýningatímar

Engar sýningar

  • Handritshöfundur: Eftir skáldsögu Gunnars Gunnarssonar
  • Lengd: 181 mín
  • Frumsýnd: 14. Nóvember 2021

Sýnd í Bíó Paradís sunnudaginn 14. nóvember kl 15:00. Oddný Sen kvikmyndafræðingur heldur stutta tölu á undan sýningu. ATH hlé verður á sýningunni. 

Saga Borgarættarinnar er fyrsta leikna kvikmyndin sem tekin var upp hérlendis og markar því upphaf kvikmyndagerðar á Íslandi. Nordisk Film Kompagni í Danmörku gerði myndina eftir skáldsögu Gunnars Gunnarssonar og kom til Íslands í ágúst 1919 með kvikmyndatökulið og danska leikara í helstu hlutverk. Aðalhlutverkið var í höndum Guðmundar Thorsteinssonar (Muggs) en auk hans lék fjöldi Íslendinga í myndinni sem var tekin upp á Rangárvöllum, í Borgarfirði, Reykjavík og Hafnarfirði.

Kvikmyndin varð rúmlega þriggja tíma löng og hin dýrasta sem gerð hafði verið á Norðurlöndum á sínum tíma þegar hún var frumsýnd í Kaupmannahöfn í ágúst 1920. Í tilefni aldarafmælis Sögu Borgarættarinnar hefur Kvikmyndasafn Íslands unnið stafræna endurgerð upp úr bestu finnanlegu eintökum af myndinni. Þórður Magnússon tónskáld var fenginn til að semja nýja tónlist við myndina sem var frumflutt af Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á frumsýningu hinnar nýju endurgerðar í Hofi vorið 2021.

Aðrar myndir í sýningu