Suspiria (2018)

Sýningatímar

Engar sýningar

Mynd þessi er ekki við hæfi yngri en 16 ára

  • Tegund: Fantasía/Fantasy, Mystería, Hryllingur/Horror
  • Leikstjóri: Luca Guadagnino
  • Handritshöfundur: Dario Argento (characters) | Daria Nicolodi (characters) | David Kajganich (screenplay)
  • Ár: 2018
  • Lengd: 152 mín
  • Land: Ítalía, Bandaríkin
  • Frumsýnd: 7. Desember 2018
  • Tungumál: Enska, þýska, franska // English, German, French
  • Aðalhlutverk: Dakota Johnson, Tilda Swinton, Chloë Grace Moretz, Elena Fokina, Mia Goth, Lutz Ebersdorf

ÍSLANDSFRUMSÝNING
Fyrsta sýning myndarinnar á Íslandi fimmtudaginn 6. desember kl.20:00 að viðstöddum heiðursgestinum Höllu Þórðardóttur, en hún er íslenskur dansari hjá Íslenska dansflokknum sem fer með hlutverk í myndinni, ásamt því að vera aðstoðardanshöfundur og dansþjálfari aðalleikkvennanna.

Svartnættið er altumlykjandi í hringamiðju heimsþekkts dansstúdíós, sem mun gleypa listræna stjórnandann (Tilda Swinton), ungan metnaðarfullan dansara (Dakota Johnson) og syrgjandi sálfræðing (Lutz Ebersdorf). Sumir munu bugast af martröðinni, á meðan aðrir vakna loksins til lífsins.

Suspiria er magnþrungin endurgerð á samnefndri kvikmynd leikstjórans Dario Argento frá 1977, en sú mynd er þekktasta ítalska hryllingsmynd allra tíma og hefur fyrir löngu náð költ status á meðal kvikmyndafólks og hrollvekjuunnenda. Í endurgerðinni er sagan færð í nýjan búning þar sem fer saman stórkostlegur leikur í yfirnáttúrulega andrúmslofti þar sem dans og tónlist spila einnig stóran sess, en hinn þekkti söngvari Radiohead Thom Yorke samdi tónlist myndarinnar.

Leikstjóri myndarinnar er hinn ítalski Luca Guadagnino sem var meðal annars tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir síðustu mynd sína, Call Me by Your Name, en leikstjórinn vill frekar líta á nýju myndina sem ákveðinn virðingarvott við hina upprunalegu mynd í stað þess að tala um beina endurgerð.

Til gamans má geta að tveir íslenskir atvinnudansarar komu að gerð myndarinnar, þær Halla Þórðardóttir dansari hjá Íslenska dansflokknum og Tanja Marín Friðjónsdóttir sem er búsett í Brussel. Þær tóku meðal annars báðar þátt í að þjálfa aðalleikkonurnar Tilda Swinton, Dakota Johnson, Chloë Grace Moretz og Mia Goth, þar fyrir utan fór Halla einnig með (lítið) hlutverk dansara í myndinni ásamt því að vera aðstoðardanshöfundur.

English

ICELANDIC PREMIERE
First screening of the film in Iceland on Thursday December 6th at 20:00 with the honorary guest Halla Þórðardóttir attending, she is an Icelandic dancer with the Iceland Dance Company that plays a part in the movie, as well as being assistant dance choreographer and dance coach for the main actresses.
A darkness swirls at the center of a world-renowned dance company, one that will engulf the troupe’s artistic director (Swinton), an ambitious young dancer (Johnson), and a grieving psychotherapist (Ebersdorf). Some will succumb to the nightmare. Others will finally wake up.

Oscar® nominee Luca Guadagnino (Call Me by Your Name) directs an unsettling and original take on the 1977 cult horror classic Suspiria. Young American dancer Susie Bannion arrives in 1970s Berlin to audition for the world-renowned Helena Markos Dance Company, stunning the troupe’s famed choreographer, Madame Blanc, with her raw talent. When she vaults to the role of lead dancer, Olga, the previous lead, breaks down and accuses the company’s female directors of being witches. As rehearsals intensify for the final performance of the company’s signature piece, Susie and Madame Blanc grow strangely close, suggesting that Susie’s purpose in the company goes beyond merely dancing. Meanwhile, an inquisitive psychotherapist trying to uncover the company’s dark secrets enlists the help of another dancer, who probes the depths of the studio’s hidden underground chambers, where horrific discoveries await.

Suspiria features a powerful female cast, including Academy Award winner Tilda Swinton (We Need to Talk About Kevin, Doctor Strange), Dakota Johnson (the Fifty Shades of Grey franchise), Chloë Grace Moretz (If I Stay, The Miseducation of Cameron Post) and Mia Goth (A Cure for Wellness), and haunting music composed by Radiohead lead singer Thom Yorke.

Aðrar myndir í sýningu