The Tribe

Sýningatímar

Engar sýningar

  • Tegund: Drama
  • Leikstjóri: Myroslav Slaboshpytskiy
  • Ár: 2014
  • Lengd: 132
  • Land: Úkraína
  • Aðalhlutverk: Grygoriy Fesenko, Yana Novikova, Rosa Babiy, Alexander Dsiadevich

The Tribe fjallar um heyrnalausan ungling sem fer í heimavistarvistaskóla fyrir heyrnaskerta og gengst þar inn í framandi samfélag. Hann verður ástfanginn af einum meðlimi hópsins og fellur smátt og smátt í þá gryfju að brjóta allar þær óskrifuðu reglur sem hópurinn hefur sett sér.

Myndin er fyrsta kvikmynd í fullri lengd í leikstjórn Myroslav Slaboshpytskiy en hún sópaði að sér verðlaunum á gagnrýnendaviku kvikmyndahátíðarinnar í Cannes og hafa gagnrýnendur víðsvegar um heim staðið á öndinni yfir þeirri stórbrotnu kvikmyndagerð sem hér er um að ræða. Myndin er án tals og er eingöngu talað táknmál í myndinni.

Myndin hefur verið margverðlaunuð fyrir einstakan kvikmyndastíl, meðal annars á Cannes kvikmyndahátíðinni, en myndin þykir fanga á einstakan hátt veröld heyrnalausra.

Aðrar myndir í sýningu