Bíó Paradís býður upp á reglulegar sýningar á kvikmyndum frá Portúgal!
Þrjár kvikmyndir eftir portúgalska kvenleikstjóra eru allar sýndar í röð!
THE PARTY í leikstjórn Sofiu Bost
Við kynnumst Menu sem býr ein með dóttur sinni Clöru. Þegar þær eru í þann mund að fara halda upp á afmæli dótturinnar þá fær Mena símtal sem breytir öllu …
RUBY í leikstjórn Marianu Gaivão
Ljóðræn sýn á veruleika Ruby, sem tilheyrir tveimur mismunandi löndum, tveimur mismunandi heimum.
DOGS BARKING AT BIRDS í leikstjórn Leonor Teles
Skólaárinu er lokið og túristar fylla götur og kaffihús í Porto. Vincente ferðast um borgina á hjólinu sínu, heimurinn breytist en það gerir einnig tilvera hans …