Veðrabrigði

Sýningatímar

Engar sýningar

Mynd þessi er leyfð öllum aldurshópum

  • Tegund: Heimildamynd/Documentary
  • Leikstjóri: Ásdís Thoroddsen
  • Ár: 2015
  • Land: Ísland
  • Frumsýnd: 26. Nóvember 2015
  • Tungumál: Íslenska

Á Flateyri berjast íbúar fyrir tilveru sinni og framtíð þorpsins. Með tilkomu kvótakerfisins færðust örlög íbúanna í hendur þeirra sem réðu kvótanum.

Á Flateyri við Önundarfjörð hefur byggst upp þorp í kringum útgerð og fiskverkun. En nú hallar undan fæti. Lögin um stjórn fiskveiða hafa reynst þorpinu afdrifarík. Fyrir utan eru gjöful fiskimið, en ekki er sjálfsagt að róið sé til fiskjar. Mikill hluti þorpsbúa er pólskt verkafólk sem hefur sótt þangað í atvinnuskyni, en á hinn bóginn flytja ungir Íslendingar burt í leit að menntun og einhverju öðru við að vera en fiskvinnu. Fylgst er með nokkrum þorpsbúum við störf sín og rætt við þá um lífskilyrði þeirra og þorpsins.

Ber fyrst að telja hina öldnu Jóhönnu sem segir nýliðna sögu þorpsins. Önundur vörubílstjóri heitir eftir firðinum þar sem hjarta hans slær, en hann fær ekki þrifist. Samhent fjölskylda Guðrúnar, eiginmanns hennar og barna, gerir út og herðir gæðaharðfisk. Einyrkinn Sigurður fiskar með syni sínum á unglingsaldri upp í leigukvóta. Janina var nýflutt til landsins, vann í frystihúsinu og var nýbúin að kaupa hús, þegar henni var sagt upp í þrengingum þorpsins. Stanislaw flæktist til Íslands úr atvinnuleysi Póllands og endaði á Flateyri sem sjómaður. Á endanum hittum við Bryndísi, nýkomna til þorpsins full eldmóðs sem framkvæmdastjóri nýs fyrirtækis.

Inn í persónulegar dramatískar frásagnir er klippt inn fréttaefni allt frá því er kvótahafi selur burt kvóta þorpsins dag einn í maí 2007 og síðan þá hvernig reynt hefur verið að koma fótum á nýjan leik undir atvinnustarfsemi í þorpinu; með stofnun nýs fyrirtækis sem gerði út á leigukvóta en fór í gjaldþrot upp úr íslenska efnahagshruninu. Þá kemur enn nýtt fyrirtæki til leiks sem virðist muni ganga vel. En annað kemur á daginn.

Framleiðendur: Hjálmtýr Heiðdal og Heather Millard

Framleiðslufyrirtæki: Seylan ehf.

Samframleiðendur: Yeti Film Þýskalandi og Metro Films Póllandi

Myndin er sýnd með enskum texta.

English

The village of Flateyri in the NW of Iceland is a community in crisis.  Through the film we gain a unique insight into a community struggling to come to terms with an uncertain future.
Justfishing grounds that ultimately gave rise to this settlement.

The quota system, or the Fisheries Management Act, was implemented 1990 in Iceland to prevent the overharvesting of fish. The right to fish is attached to specific vessels which are free to either keep, rent out or transfer (sell) their quota to another party.
The transfer of quota can effectively eliminate the livelihood of a coastal community by depriving it of its right to fish. Big corporations based in various parts of Iceland have paid substantial amounts to acquire boats and thereby have bought and consolidated most of the quota from small villages.

Today there are approximately 190 inhabitants whom call Flateyri home, a third of which are immigrants from Poland who have been moving to the village over the last several years. Without these new arrivals Flateyri would cease to exist, as most of the native population of working age has departed in search of either higher education or more job opportunities further afield.

English subtitles.

Aðrar myndir í sýningu