Bíó Paradís býður upp á bíó í björtu alla miðvikudaga kl 14:00 fyrir alla sem vilja komast í bíó að degi til.
Tilvalið fyrir eldra fólk, fólk sem vinnur á kvöldin og alla þá sem þrá að fara í bíó að degi til!
Aðgengi í Bíó Paradís er nú til fyrirmyndar. Við erum með ramp inn í sal 1, lyftu inn í sal 2 og 3. Hjólastólastæði í öllum sölum og salerni fyrir hreyfihamlaða.
Bíó Paradís býður 25% afslátt fyrir nema, öryrkja og eldri borgara.
Afslátturinn fæst í miðasölu á staðnum en ekki á vefnum.
Hvers kyns hópar og félagsstarf sérstaklega velkomnir!