Við heiðrum drottninguna Dolly Parton með einni allra skemmtilegustu vinnustaðakómedíu kvikmyndasögunnar!
Skrifstofuöngþveiti og hefndarsögur - Dolly í Paradís laugardagskvöldið 10. október kl 21:00!
Þrjár konur fá nóg af hrokafullum, sjálfumglöðum og gjörsamlega óþolandi yfirmanni sínum - og ákveða að taka málin í eigin hendur.
Dolly Parton, Jane Fonda og Lily Tomlin eru ómótstæðilegar í þessari eitursnjöllu költklassík frá 1980 – og auðvitað er titillagið 9 to 5 eitt mesta stuðlag allra tíma.




