Doktor Proktor og tímabaðkarið

Hinn ástsjúki Doktor Proktor ferðast aftur í tímann í örvæntingarfullri viðleitni til þess að breyta sögunni. Hann vill reyna koma í veg fyrir brúðkaup sinnar heittelskuðu Juliette og hins hallærislega Kládíusar Klisju en hann hann festist óvart í fortíðinni! Lisa og Nilly, hinir ungu og dyggu aðstoðarmenn doktorsins verða því að ferðast á tímabaðkarinu aftur til fortíðar til þess að hjálpa honum!

Doktor Proktor og tímabaðkarið er stórskemmtileg ævintýramynd fyrir börn á öllum aldri um þrjá vini sem sem leggja allt í sölurnar til þess að bjarga mannkynssögunni og ástinni! Þetta er önnur myndin sem byggð er á vinsælum barnabókum Jo Nesbø um Doktor Proktor og vini hans!

Myndin er talsett á íslensku!


Mynd þessi er ekki við hæfi yngri en ára

  • Leikstjórn: Arild Fröhlich
  • Handrit: Jo Nesbø, Johan Bogaeus
  • Aðalhlutverk: Emily Glaister, Eilif Hellum Noraker, Atle Antonsen, Linn Skåber
  • Lengd: 95 mín
  • Tungumál: Íslenska
  • Texti:
  • Tegund:Adventure, Family, Fantasy, Comedy
  • Framleiðsluár: 2015
  • Upprunaland: Þýskaland, Noregur