Látlaust samtal tveggja sótara sem vinna saman, fer úr böndunum þegar annar þeirra játar að hafa átt kynmök við ókunnugan karlmann, án fyrirvara, á vinnutíma.
Sá hinn sami fer beint heim eftir vinnu og tilkynnir eiginkonu sinni um atvikið sem bregst vægast sagt illa við.
Fyrsta myndin í hörkuþríleik úr smiðju Dag Johans Haugerud sem frumsýnd var á kvikmyndahátíðinni Berlinale 2024.
Myndin er opnunarmynd sýninga á tilnefndum kvikmyndum til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2024.
English
Two chimney sweeps living in monogamous, heterosexual marriages both end up in situations that challenge their views on sexuality and gender roles.
The film received the EUROPA CINEMAS LABEL during Berlinale Film Festival 2024.