Heimildastuttmyndir

Allar heimildastuttmyndirnar sem sýndar voru á Skjaldborg í vor eru sýndar saman í dagskrárhólfi, m.a. Kirsuberjatómatar eftir Rakel Andrésdóttur sem vann Skjölduna fyrir bestu heimildastuttmyndina á Skjaldborg en þau verðlaun voru veitt í fyrsta sinn í ár.


KIRSUBERJATÓMATAR (´3)
Stutt teiknimynd um sumarið sem ég var send í sveit til þess að týna og flokka kirsuberjatómata.
Leikstjórn og framleiðsla: Rakel Andrésdóttir


DÓRÓFÓNN? (´17)
Ferðalag sem kannar Dórófóninn, leit að skapara hans og árekstrar við hið óumflýjanlega rugl sem virðist fylgja þessu sérkennilega hljóðfæri.
Leikstjórn: Nikulás Tumi Hlynsson
Framleiðsla: Nikulás Tumi Hlynsson / FAMU International
 
HVÍTAR ARKIR (´10)
Fjallað verður um á myndrænan hátt hvernig handunninn pappír er búinn til úr náttúrulegum cellulósa eða plöntutrefjum.  Sýnt er hvernig þessi handverkskunnátta, sem fyrst varð til á 6. öld í
Kína, er notuð enn þann dag í dag með því að skrásetja vinnsluferlið frá hráefni til lokaafurðar.
Leikstjórn og framleiðsla: Kristveig Halldórsdóttir


MEMOIR OF A MORPHED CINEMATIC REALITY VOL. 2  (´11)
Mordechai situr á móti maka háns, tökumanninum, í leit að heimili. Á meðan minnist háni fortíðarinnar, fagnar minningum og syrgir; minnist hefða, siða, og gilda. Allt fólkið og sögur þeirra eru
geymdar í minningu Rabbi, mitt habibi, minn ástkæri Mordechai Eli Mkrtchyan Ben Ezra.
Leikstjórn og framleiðsla: Bryn Nóel Francis


TURNINN (´9)
Ásgeir Eiríksson endurbyggði gamlan súrheysturn foreldra sinna á ættarjörðinni, drifinn áfram af minningu um fegurð náttúrunnar og tengingu við forfeðurna. Barnabarn hans kemur í heimsókn og
þeir eyða stund saman í turninum þar sem þeir hugleiða í augnablikinu og rifja upp endurbyggingu turnsins.
Leikstjórn og framleiðsla: Sara Dögg Ásgeirsdóttir
 
VÉLSMIÐJA 1913 (´20)
Líf Kristjáns hefur snúist um vélsmiðjuna á Þingeyri frá því hann kom þangað inn sem lítill strákur að færa bróður sínum kaffi. Nú þegar hann er orðinn áttræður verða tímamót í lífi hans og smiðjunnar sjálfrar. Meira en aldargamlar vélar hennar munu varla standast tímans tönn í hnattvæddum heimi fjöldaframleiðslu.
Leikstjórn: Arnar Sigurðsson
Framleiðsla: Elfar Logi Hannesson


YFIR EYÐIMÖRK (´5)
Við stígum inn í endurminningar Sigurveigar Guðmundsdóttur þar sem hún rifjar upp áhrifamikla dauðastund Theódóru Þuríðar Jónsdóttur á berklahælinu á Vífilstöðum eftir að hafa legið þar með
henni í 6 mánuði til ársins 1928. 44 árum síðar lifnar ósögð saga Theódóru við og verður að táknmynd verndar andspænis hörmulegum náttúruhamförum.
Leikstjórn og framleiðsla: Agnes Lára


Mynd þessi er leyfð öllum aldurshópum

  • Frumsýnd: 14. September 2024
  • Leikstjórn:
  • Handrit:
  • Aðalhlutverk:
  • Lengd: 75 mín
  • Tungumál: Other
  • Texti: Enskur
  • Tegund:Documentary
  • Framleiðsluár: 2023
  • Upprunaland: Ísland

Aðrar myndir í sýningu