Dramatísk og falleg kvikmynd eftir Baldvin Z um Gabríel sem er í leit að sjálfum sér, sextán ára og ringlaður í síbreytilegri og flókinni veröld. Hans nánustu merkja breytingar á honum þegar hann kemur heim eftir tveggja vikna dvöl í Manchester, þar sem hann kynntist hinum uppreisnargjarna Marcusi.
Eftir röð óheppilegra atburða og sjálfsvíg bestu vinkonu hans, Stellu, fellur Gabríel í hyldýpi örvæntingar, sem neyðir hann til að horfast í augu við sjálfan sig. Órói hverfist um ást, missi, hatur, svik, sælu, sorg og fyrirgefningu.
*Sérstakur viðburður, hinsegin bíó. Sýnd 24. nóvember kl 17:00.