Aldraður bóndi skrifar bréf til ástkonunnar sem honum bauðst að fylgja forðum tíð. Gerði hann rétt að taka skyldur sínar við sveit og eiginkonu fram yfir ástina, eða sveik hann þannig sitt eigið hjarta?
Blindrafélagið og Bíó Paradís bjóða í bíó!
Sunnudagurinn 15. október er alþjóðlegur dagur hvíta stafsins, sem er öflugasta og algengasta verkfæri blindra og sjónskertra. Af því tilefni efnir Blindrafélagið til samstarfs við nokkrar menningarstofnanir. Einn af þessum aðilum er Bíó Paradís sem mun vera með þrjú bíó og fimm bíó sunnudaginn 15. október.
Svar við bréfi Helgu verður sýnd klukkan 17:00 með sérstakri sjónlýsingu, en sjónlýsing er leið til að lýsa með orðum því sem fyrir augu ber fyrir þá sem eru blindir eða sjónskertir.
Sýningarnar eru hluti af KÓSY KINO verkefninu sem er styrkt af EEA sjóði Noregs, Íslands og Lichtenstein og ríkissjóði Slóvakíu.