Kvöldstund með Trine Dyrholm miðvikudagskvöldið 30. október kl 19:30 á frumsýningu myndarinnar Stúlkan með nálina! Kvöldstundinni stýrir Vera Sölvadóttir, kvikmyndagerðarkona.
Stórleikkonuna Trine Dyrholm þarf vart að kynna, þekkt fyrir kvikmyndirnar Queen of Hearts (2019), Love Is All You Need (2012) and In a Better World (2010) ásamt hlutverkum í þátttaröðum á borð við Erfingjana (Arvingerne). Hún hefur nýlokið tökum á nýrri sjónvarpsþáttaröð Dönsku konunni í leikstjórn Benedikts Erlingssonar.
Líf hinnar ungu Karoline (Vic Carmen Sonne), sem vinnur í verksmiðju rétt eftir síðari heimsstyrjöld, tekur dramatíska stefnu þegar hún heyrir af dularfullri konu (Trine Dyrholm) sem er þekkt fyrir að aðstoða fátækar konur við að koma nýfæddum börnum í fóstur.
Þessi óhugnanlega saga, lauslega byggð á raunverulegum atburðum, opnar dyr að heimi leyndarmála og örvæntingar.
English
An evening with Trine Dyrholm, Wednesday October 30th at 7:30PM during the premiere of The Girl with the Needle. Filmmaker Vera Sölvadóttir is the host of evening with....
Copenhagen 1919: A young worker finds herself unemployed and pregnant. She meets Dagmar, who runs an underground adoption agency. A strong connection grows but her world shatters when she stumbles on the shocking truth behind her work.
'Loosely based on fact, Magnus van Horn’s fictionalised true crime nightmare leaves you with a shiver of pure fear' - The Guardian