Það kvað við nýjan tón í íslenskri kvikmyndagerð með kvikmyndinni Fiskur undir steini eftir Þorstein Jónsson og Ólaf Hauk Símonarson.
Kvikmyndin var frumsýnd á RÚV í nóvember 1974 og olli straxmikilli úlfúð í samfélaginu. Margar blaðagreinar voru ritaðar og myndin gagnrýnd úr ræðustól Alþingis.
Fiskur undir steini var fyrsta kvikmynd Þorsteins og Ólafs Hauks í röð mynda um menningu. Í henni fer höfuðborgarbúi í sjávarpláss og reynir að kynnast lífinu þar.
Myndin er tekin í Grindavík en á að lýsa hefðbundnum sjávarplássum víðs vegar um landið þar sem fólk vinnur myrkranna á milli en nýtur ekki menningar og lista. Það lá fyrir áður en myndin var sýnd að hún myndi stuða marga og greip RÚV til þess ráðs að verameð umræðuþátt strax að lokinni sýningu.
Í þættinum mættu Þorsteinn og Ólafur Haukur þeim Magnúsi Bjarnfreðssyni fréttamanni Sjónvarpsins og Guðlaugi Þorvaldssyni háskólarektor.
Á sýningu Bíóteksins verður umræðuþátturinn sýndur eftir kvikmyndasýninguna í fyrsta sinn í rúma hálfa öld. *Sérstakur viðburður