Mótmælandi Íslands er heimildamynd sem var frumsýnd 24. október 2003, í leikstjórn Þóru Fjeldsted og Jóns Karls Helgasonar og fjallar um Helga Hóseasson, sem var þekktur fyrir að mótmæla ríkisvaldi og þjóðkirkjunni á Íslandi.
Helgi var mjög ákveðinn í baráttu sinni fyrir trúfrelsi og krafðist þess aðvera skráður úr þjóðkirkjunni.
Myndin hefur fengið lof fyrir að varpa ljósi á persónulega sögu Helga,sem þótti hálfgerður furðufugl, en eftir sýningar myndarinnar í kvikmyndahúsum og sjónvarpi jókst samúð almennings með honum. Helgi hafði ekki haft sigur í baráttu sinni þegar hann lést árið 2009.
Myndin hefur víða verið sýnd á kvikmyndahátíðum og hlotið tilnefningar til verðlauna, meðal annars Edduverðlaunanna.*Sérstakur viðburður