Jörðin undir fótum okkar segir frá sólarlagi lífsins á hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík þar sem tíminn lýtur sínum eigin lögmálum.
Þetta er þriðja kvikmynd Yrsu Roca Fannberg (Salóme 2014; Síðasta haustið 2019) og var frumsýnd á einni virtustu hátíð fyrir heimildarmyndir CPH:DOX í Danmörku og hlaut Edduna, íslensku kvikmyndaverðlaunin, fyrir heimildamynd ársins.
Myndin er ljóðræn og veitir einstaka innsýn í þetta tímabil lífsins þar sem mennska og kærleikur skín í gegn. Myndin hefur hrifið fólk á öllum aldri og ekki síður yngri kynslóðir.
Jörðin undir fótum okkar hefur slegið í gegn á kvikmyndahátíðum út um allan heim. Hún vann til aðalverðlauna á einni stærstu heimildarmyndahátíð Asíu DMZDocs, og dómnefndarverðlaun á Hong Kong Int. Film Festival, einnig á Tromsö Int. Film Festival í Noregi. Hanna Björk Valsdóttir framleiðandi myndarinnar hlaut aðalverðlaun framleiðanda á Nordisk Panorama 2025.
English
A warm, human film from an elderly home in Reykjavík with a poetic eye for the small mysteries and miracles of everyday life - and a great love for life itself, as long as it lasts.
The Ground Beneath Our Film was awarded Documentary of the Year at the Icelandic Film Awards and has won prizes at film festivals around the world.
