Lítil Þúfa (56 mín) er gerð eftir frumsömdu handriti sem fjallar um 15 ára stúlku í skóla sem verður óvart barnshafandi eftir handriti og í leikstjórn Ágústs Guðmundssonar.
Hlé!
Himnahurðin breið (50 mín) var upphaflega rokkópera sem sett var á svið í Menntaskólanum við Hamrahlíð og síðan endurgerð sem kvikmynd. Myndin er fantasía um hið góða og hið illa og gerist ekki öll í raunveruleikanum.
Í leikstjórn Kristbergs Óskarssonar og tónlistin er eftir Kjartan Ólafsson.
Ekki missa af þessari einstöku sýningu, þann 1. nóvember á laugardagspartísýningu kl 19:00!