PARTÍSÝNINGAR

Nýtt Líf

Daníel og Þór sigla undir fölsku flaggi og ráða sig í vinnu hjá stærsta fiskvinnslufyrirtækinu í Eyjum, þar sem þeir kynnast Víglundi verkstjóra („Þú ert kallaður „Lundi“ er það ekki?“), bónusvíkingnum Axel, ungfrú Snæfells- og Hnappadalssýslu, Maríu Lundadóttur og skipstjóranum hjátrúarfulla og fjölmörgum öðrum ógleymanlegum persónum.

Eyjamúsíkin dunar í myndinni í stórkostlegum flutningi Bjarkar Guðmundsdóttur og fleiri tónlistarmanna. Í Nýju lífi skutust þeir Þór og Danni upp á stjörnuhiminn íslenskrar kvikmyndasögu og urðu góðkunningjar allrar þjóðarinnar.

Myndin er sýnd í nýrri stafrænni útgáfu í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands á sérstakri sýningu laugardaginn 25. apríl kl 19:00.

Bíó Paradís og Kvikmyndasafn Íslands sýna allar íslensku kvikmyndirnar sem teknar voru fyrir í þáttunum Stjörnubíó sem sýndir voru á RUV. 

Sýningatímar


Mynd þessi er leyfð öllum aldurshópum

  • Leikstjórn: Þráinn Bertelsson
  • Handrit: Þráinn Bertelsson
  • Aðalhlutverk: Eggert Þorleifsson, Björk, Karl Ágúst Úlfsson, Runólfur Dagbjartsson, Eiríkur Sigurgeirsson, Sveinn Tómasson, Guðrún Kolbeinsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir, Ingveldur Gyða Kristinsdóttir, Magnús S. Magnússon, Frímann Lúðvíksson, Hlynur Ólafsson, Guðlaug Bjarnadóttir, Sigurður Hallmarsson, Sólrún Yngvadóttir
  • Lengd: 87 mín
  • Tungumál: íslenska
  • Texti: Enginn texti
  • Tegund:Comedy
  • Framleiðsluár: 1983
  • Upprunaland: Ísland