Bíódagar

Árið er 1964 og Tómas, tíu ára drengur í Reykjavík, sér heiminn í gegnum kvikmyndirnar sem hann elskar. Kúrekar, hetjur og ævintýri hvíta tjaldsins blandast hversdagslífinu og verða leið fyrir lítinn strák til að skilja undarlegan heim fullorðna fólksins. Þegar drengurinn er sendur í sveit yfir sumartímann mætast kvikmyndafantasían og íslenskur veruleiki með áhrifamiklum hætti. Bíódagar er hlý og nostalgísk uppvaxtarsaga í leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar sem hlotið hefur fjöldamörg verðlaun.

Hún dregur upp lifandi mynd af liðnum tíma, þar sem bíóferðir voru stórviðburður og gamlar hefðir tókust á við nýja tíma, sjónvarp og amerísk menningaráhrif.

Sýnd í Bíótekinu, sunnudaginn 13. september kl 17:00! 

Sýningatímar


Mynd þessi er leyfð öllum aldurshópum

  • Leikstjórn: Fridrik Thor Fridriksson
  • Handrit: Fridrik Thor Fridriksson, Einar Már Guðmundsson
  • Aðalhlutverk: Guðrún Ásmundsdóttir, Róbert Arnfinnsson, Theodór Júlíusson, Rúrik Haraldsson, Örvar Jens Arnarson, Sigrún Hjálmtýsdóttir
  • Lengd: 82 mín
  • Tungumál: íslenska
  • Texti: Enginn texti
  • Tegund:Drama
  • Framleiðsluár: 1994
  • Upprunaland: Danmörk, Þýskaland, Ísland

Aðrar myndir í sýningu