Árið 2022 er New York yfirfull af fólki, náttúruauðlindir eru nær uppurnar og meirihluti íbúanna lifir við sára fátækt. Þegar lögreglumaðurinn Thorn rannsakar morð leiða vísbendingarnar hann að matvælarisanum Soylent og leyndarmáli sem enginn má vita.
Charlton Heston og Edward G. Robinson fara með aðalhlutverk í þessari spennuþrungnu framtíðarsýn. Soylent Green, í leikstjórn Richards Fleischer, er í senn spennumynd og áhrifamikil samfélagsádeila. Í henni birtist óhugnanleg framtíðarsýn sem hefur öðlast æ meiri skírskotun til samtímans með árunum.
Myndin spyr áleitinna spurninga um misskiptingu, umhverfisspjöll og vald stórfyrirtækja.
Sýnd í Bíótekinu sunnudaginn 4. október kl 19:00!
