Bíótekið – Kvikmyndasafn Íslands og Bíó Paradís

Ashes and Diamonds

Aska og demantar, í leikstjórn Andrzejs Wajda, er eitt þekktasta verk pólskrar kvikmyndasögu.

Myndin gerist í litlum pólskum bæ á síðasta degi síðari heimsstyrjaldarinnar. Þegar sigrinum yfir Þýskalandi er fagnað blasir óviss framtíð við þjóðinni. Zbigniew Cybulski leikur Maciek, ungan liðsmann andkommúnistískrar hreyfingar sem fær það verkefni að ráða háttsettan kommúnista af dögum. Þegar hann kynnist barþjóninum Krystynu og verður ástfanginn fer hann hins vegar að efast um hugsjónirnar sem hann berst fyrir og það líf sem bíður hans ef hann hlýðir fyrirmælunum.

Með áhrifamikilli svarthvítri kvikmyndatöku, sterku táknmáli og ógleymanlegum myndum fangar Wajda samfélag á örlagaríkum tímamótum.

Myndin gerði Cybulski að einni af skærustu stjörnu pólskra kvikmynda. Kvikmyndin er sýnd í samstarfi við Pólska Sendiráðið í Reykjavík.

Bíótekið, sunnudaginn 6. desember kl 17:00!

Sýningatímar

  • Sun 06.Des

Mynd þessi er ekki við hæfi yngri en 16 ára

  • Leikstjórn: Andrzej Wajda
  • Handrit: Andrzej Wajda, Jerzy Andrzejewski
  • Aðalhlutverk: Zbigniew Cybulski, Ewa Krzyżewska, Wacław Zastrzeżynski
  • Lengd: 103 mín
  • Tungumál: polish
  • Texti: Enskur
  • Tegund:Drama, War, Romance
  • Framleiðsluár: 1958
  • Upprunaland: Pólland

Aðrar myndir í sýningu