Innocent Sorcerers

Saklausir töframenn í leikstjórn Andrzejs Wajda, er fáguð og lágstemmd mynd af ungu fólki í Varsjá á mörkum sjötta og sjöunda áratugarins. Í stað stórra sögulegra átaka, sem einkenndu fyrri myndir Wajda, beinir hann hér sjónum að nýrri kynslóð sem leitar frelsis í djassi, næturlífi, daðri og nútímalegum lífsstíl.

Sagan fylgir ungum lækni og djassleikara sem kynnist dularfullri stúlku á skemmtistað. Þau verja nóttinni saman og fela óöryggi sitt á bak við kaldhæðni og yfirvegað kæruleysi. Eftir því sem líður á nóttina verður þó ljóst að undir yfirborðinu býr þrá eftir raunverulegri nánd. Með svölum stíl og djassmúsík Krzysztofs Komeda fangar myndin líf unga fólksins í Póllandi eftir stríð sem reynir að skapa sér sína eigin tilveru þar sem frelsi er enn takmarkað.

Kvikmyndin var mikið gagnrýnd af yfirvöldum sem vildu meina að hún upphefði kæruleysi ungu kynslóðarinnar og áhuguleysi hennar á pólitík. Kvikmyndin er sýnd í samstarfi við Pólska Sendiráðið í Reykjavík.

Sýnd í Bíótekinu, sunnudaginn 6. desember kl 19:30. 

Sýningatímar

  • Sun 06.Des

Mynd þessi er ekki við hæfi yngri en 16 ára

  • Leikstjórn: Andrzej Wajda
  • Handrit: Jerzy Andrzejewski, Jerzy Skolimowski
  • Aðalhlutverk: Kalina Jędrusik, Zbigniew Cybulski, Jerzy Skolimowski, Tadeusz Łomnicki, Krystyna Stypułkowska, Wanda Koczeska, Teresa Szmigielówna, Roman Polanski, Andrzej Nowakowski, Andrzej Gawroński, Marian Kociniak, Krzysztof Komeda, Henryk Kurek, Sława Przybylska, Andrzej Trzaskowski, Andrzej Wojciechowski, Jan Zylber, Janusz Kłosiński
  • Lengd: 83 mín
  • Tungumál: polish
  • Texti: Enskur
  • Tegund:Romance, Comedy
  • Framleiðsluár: 1960
  • Upprunaland: Pólland

Aðrar myndir í sýningu