Menningarsmygl í Paradís kynnir ungversku kvikmyndina Af líkama og sál (Testről éslélekről), sem Ásgeir H Ingólfsson lýsti sem „undurfurðulegri og fallegri mynd“ en um heiðurssýningu er að ræða í tilefni af Menningarsmygli í Paradís sjá nánar hér:
Föstudaginn 21. ágúst kl 17:00!
Um myndina:
Óvenjuleg ástarsaga sem gerist í hversdagsleikanum, sem hverfist um markaleysið á milli svefns og vöku, huga og líkama.
On Body and Soul vann Gullbjörninn, aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar Berlinale 2017. Að auki hlaut hún FIPRESCI og Ecumenical dómnefndarverðlaun. Alexandra Borbély vann verðlaun sem besta leikkonan í kvikmynd á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum 2017.
Myndin var tilnefnd sem besta erlenda kvikmyndin til Óskarsverðlauna 2018.
„Sláandi tilfinningadrama sem kannar kraft mannlegrar tengingar á ólíklegustu stöðum“ – Screen Daily
