Þrír feður, þrjár dætur og heill her af stjórnlausum unglingum á afskekktri eyju. Skólaferðalagið fer fljótt úr böndunum þegar saklausir leikir breytast í óvænta valdabaráttu- og feðurnir missa tökin..eða hvað?
Beitt, kolsvört og óþægilega fyndin sænsk kvikmynd um feðrahlutverkið, karlmennsku og valdatafl kynslóðanna.
Frumraun metsöluhöfundarins Alex Schulman í leikstjórastólnum, með Gustaf Skarsgård, Fares Fares og Linus Wahlgren í aðalhlutverkum



