Langar þig að leika í kvikmyndum?
Þórunn Lárusdóttir, leik- söng- og kvikmyndagerðarkona heldur valdeflandi námskeið fyrir stelpur á aldrinum 10-12 ára undir yfirskriftinni Stelpur Leika! Þórunn hefur komið víða við m.a. í Gaflaraleikhúsinu og með Leikhópnum Lottu, en hún nam kvikmyndagerð á Spáni.
Sérstakur gestur á námskeiðinu er norski leikstjórinn Christian Lo, sem einnig er heiðursgestur Alþjóðlegrar Barnakvikmyndahátíðar í ár og mun hann segja aðeins frá vinnu sinni með börnum í kvikmyndum.
Umsóknir sendist á lisa@bioparadis.is – við hvetjum alla til að sækja um strax, því síðast komust færri að en vildu.
Námskeiðið er haldið laugardaginn 29. október frá kl. 12:00-14:00 í Bíó Paradís.