Þér er boðið á opnunarhátíð Alþjóðlegrar Barnakvikmyndahátíðar í Reykjavík sem haldin verður í Bíó Paradís fimmtudaginn 28. október kl 17:00 í Bíó Paradís! Frítt inn og allir velkomnir.
Við hvetjum börn á öllum aldri til þess að mæta í búningum og við minnum á að þema hátíðarinnar í ár er HREKKJAVAKA! Léttar veitingar verða í boði. Nauðsynlegt verður að skrá sig og hér er skráningar hlekkur
Dagskrá: Kl 17:00 HREKKJAVÖKUNORNIN i tekur á móti gestum með skemmtilegri og ævintýralegri uppákomu!
17:20 Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri hátíðarinnar setur hátíðina formlega.
17:30 Opnunarmynd hátíðarinnar sýnd, Nellý Rapp – Skrímslaspæjari – hentar börnum átta ára og eldri, talsett á íslensku.
Hátíðin er haldin í áttunda sinn, en hátíðin er sú fyrsta og eina sinnar tegundar.
Skoða fleiri fréttir