Samtök kvikmyndaleikstjóra SKL efnir til heimildamyndaveislu í Bíó Paradís dagana 3.–5. september, í tengslum við vinnusmiðju SKL sem haldin er með styrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands.
Dagskráin hefst fimmtudaginn 3. september kl. 14:00 – 17:00 með meistaraspjalli í Sal 1 með Mörtu Andreu, sem hefur um árabil starfað með fremstu höfundum skapandi heimildamynda og komið að þróun fjölda alþjóðlega verðlaunaðra verka. Frítt inn og Facebook viðburður hér:
Föstudaginn 4. september og laugardaginn 5. september verða sýndar tvær einstakar og margverðlaunaðar heimildamyndir: Inland Sea (2018) eftir japanska leikstjórann Kazuhiro Soda og Tempestad (2016) eftir mexíkóska leikstjórann Tatiana Huezo. Að lokinni hvorri sýningu leiðir Marta Andreu stutt spjall um myndina, aðferðir höfundanna og heimildamyndaformið.
Kazuhiro Soda og Tatiana Huezo eru meðal virtustu heimildamyndaleikstjóra samtímans. Verk þeirra hafa vakið mikla athygli á alþjóðlegum vettvangi, hlotið fjölda verðlauna og verið sýndar á helstu kvikmyndahátíðum heims. Inland Sea og Tempestad voru báðar frumsýndar á Berlinale og hafa síðan farið sigurför um alþjóðlega hátíðahringinn og teljast til sígildra verka.
Öll velkomin , hér er um að ræða tilvalið tækifæri fyrir kvikmyndaáhugafólk til að kafa ofan í heim skapandi heimildamynda. Frítt er inn á meistaraspjall Mörtu Andreu. Miðar á kvikmyndasýningarnar eru seldir sérstaklega.