PARTÍSÝNINGAR

Með allt á hreinu -sing-a-long

Bíó Paradís ætlar að bjóða upp á sýningu á MEÐ ALLT Á HREINU endurnýjaða, hljóð -og myndbætta útgáfu með sérstökum fjöldasöngstextum sem birtast í sönglögum myndarinnar. Sing-along sýning í Paradís á þessari ástsælustu kvikmynd Íslandssögunnar sem dró 120.000 manns í bíó á fyrsta sýningarári.

Tónlistar- og grínmyndin Með allt á hreinu fjallar um tvær hljómsveitir, Stuðmenn og Gærurnar (réttu nafni Grýlurnar), ástir og afbrýði meðlima þeirra og spaugilegar uppákomur í ferðalagi þeirra um Ísland. Söngtextar birtast með öllum lögum myndarinnar.

Ekki missa af sankallaðri söngveislu í Bíó Paradís föstudaginn 28. júní kl 21:00!

 

Sýningatímar

  • Fös 28.Jún

Mynd þessi er leyfð öllum aldurshópum

  • Leikstjórn: Ágúst Guðmundsson
  • Handrit: Eggert Þorleifsson, Ágúst Guðmundsson, Stuðmenn
  • Aðalhlutverk: Eggert Þorleifsson, Egill Ólafsson, Ragnhildur Gísladóttir, Jakob Frímann Magnússon, Valgeir Guðjónsson
  • Lengd: 100 mín
  • Tungumál: Íslenska
  • Texti:
  • Tegund:Comedy, Music
  • Framleiðsluár: 1982
  • Upprunaland: Ísland