Draumar, Konur & Brauð

Á töfrandi hringferð um fallega ísland, kynnumst við kraftmiklum konum, sem reka einstök kaffihús hringinn í kringum landið en líka söngkonu, sem er að skrifa handrit og samferðakonu hennar.

Svana söngkona kemur við á litla kaffihúsinu við víkina í leit að hattinum sínum. Þar kemst hún að því, að VIP úr menningarelítunni í Reykjavík verður heiðursgestur á Sólstöðuhátíð sveitarinnar eftir viku.

Svana ákveður í skyndi að skrifa nú nýja útgáfu af leikritinu sínu, „Íhennar sporum“, fara hringferð um Ísland og stíga í spor kvenna, semreka kaffihús á landsbyggðinni. Hún freistarþess að bjarga listamanns ferli sínummeð þessu móti og ná að sýna Millu, formanni Menningarnefndarinnar, afraksturinn á hátíðinni.

Hún býður Agnesi líffræðingi far og saman koma þær við á 5 kaffihúsum og kynnast þar konunum sem þau reka, draumum þeirra og dagdraumum.

Frásagnarmáti myndarinnar er í anda töfra-raunsæis.Ásamt því að fylgjast með Svönu og Agnesi fara hringinn þá rifjum við upp þjóðsögur og minni landsins. Tónlist spilar stóran þátt í verkinu.

Agnar Már Magnússon, tónskáld semur stefin en einnig á Una Stefánsdóttir tvö frumsamin lög og við hlýðum á nýja útsetningu á gömlu Þjóðhátíðarlagi Magnúsar Eiríkssonar, svo eitthvað sé nefnt.

Sýningatímar

  • Mán 29.Apr
  • Mið 01.Maí
  • Fim 02.Maí
  • Lau 04.Maí

Mynd þessi er leyfð öllum aldurshópum

  • Leikstjórn: Sigrún Vala Valgeirsdóttir, Svanlaug Jóhannsdóttir
  • Handrit: Sigrún Vala Valgeirsdóttir, Svanlaug Jóhannsdóttir
  • Aðalhlutverk: Svanlaug Jóhannsdóttir, Agnes Eydal
  • Lengd: 90 mín
  • Tungumál: Íslenska
  • Texti: Enskur
  • Tegund:Documentary, Comedy
  • Framleiðsluár: 2024
  • Upprunaland: Ísland