Bíótekið – Kvikmyndasafn Íslands og Bíó Paradís

Skytturnar

Sýningatímar

Engar sýningar

  • Tegund: Drama
  • Leikstjóri: Friðrik Þór Friðriksson
  • Handritshöfundur: Friðrik Þór Friðriksson, Einar Kárason
  • Ár: 1987
  • Lengd: 80 mín
  • Land: Ísland
  • Frumsýnd: 23. Apríl 2023
  • Tungumál: Íslenska
  • Aðalhlutverk: Eggert Guðmundsson, Þórarinn Óskar Þórarinsson

Sérstakur viðburður: Friðrik Þór Friðriksson spjallar við áhorfendur og léttar veitingar verða í boði að sýningu lokinni.

Bíótekið kynnir: Skytturnar, sunnudaginn 23. apríl kl 17:00.

Skytturnar er fyrsta leikna kvikmynd Friðriks Þórs í fullri lengd. Sagan segir frá Búbba og Grími, tveimur sjómönnum sem koma í land eftir langa fjarveru. Í tilraun til að sletta almennilega úr klaufunum þvælast þeir milli öldurhúsa, nektarsýninga og spilasala á örlagaríku fylleríi og eru úr öllum takti við daglegt líf samborgara sinna. Þegar nóttin dregst á langinn á og þeim standa ekki einu sinni fangelsisklefar til boða grípa þeir til örþrifaráða. Myndin vann til alþjóðlegra verðlauna auk þess að vera valin sem framlag Íslands til Óskarsverðlauna árið árið 1987.