Fréttir

Nostalgía á sjöttu Alþjóðlegu Barnakvikmyndahátíðinni í Reykjavík 4.-14. apríl 2019

27/03/2019

Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík verður haldin í sjötta sinn í Bíó Paradís dagana 4.-14. apríl 2019, eingöngu 1.000 kr. barnaverð fyrir ALLA og fullt af fríviðburðum.

Nostalgía mun svífa yfir vötnum, en sýndar verða klassískir 80‘s hittarar á borð við Ghostbusters og The NeverEnding Story ásamt einni ástsælustu kvikmynd úr smiðju Jim Henson The Dark Crystal.

Opnunarmynd Barnakvikmyndahátíðar er engin önnur en Benjamín dúfa, sem hefur ekki sést í bíó í áratugi, en hefur nú verið endurbætt í fullum stafrænum mynd-/hljóðgæðum fyrir frábæra upplifun.

Einnig mun kvikmyndin eftir sígildri sögu Astrid Lindgren um Ronju ræningjadóttur eiga endurkomu á Barnakvikmyndahátíð með íslensku tali, sú mynd hefur heldur ekki sést í bíó síðan á níunda áratugnum og birtist nú áhorfendum í glænýrri stafrænni útgáfu.

Japanskar teiknimyndir eiga sinn sess á Barnakvikmyndahátíðinni, en í þetta sinn verða sýndar hin klassíska mynd leikstjórans Hayao Miyazaki, My neighbor Totoro (となりのトトロ), ásamt hinni spánnýju Mirai (未来のミライ) sem var tilnefnd til Óskarsverðlaunanna í ár fyrir bestu teiknimynd.

Fjölmargir fríviðburðir eru í boði á Barnakvikmyndahátíð eins tíðkast hefur, slímnámskeið verður á undan Ghostbusters bíósýningu (sun.7/4), Japanska sendiráðið á Íslandi stendur fyrir sýnikennslu á japanskri skrautskrift (sun.7/4), ásamt einum skemmtilegasta Eurovision viðburði ársins (fös.12/4) þar sem stiklað verður yfir brot úr öllum framlögunum árið 2019 í sjöttu útgáfu af Júró-Stiklum FÁSES (Félag áhugafólks um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva). Einnig verður frítt inn á allar bíósýningar á Litlu lirfunni ljótu & Önnu og Skapsveiflunum sem sýndar verða saman, og Hagamúsinni eftir Þorfinn Guðnason. Síðast en ekki síst þá mun Borgarleikhúsið kíkja í heimsókn á lokadegi hátíðarinnar (sun.14/4) þar sem Bergur Þór leikstjóri söngleiksins Matthildur mun koma ásamt tveimur ungum leikurum úr sýningunni, en þau munu segja aðeins frá eigin uplifun af því að taka þátt í atvinnuleiksýningu, en í beinu framhaldi verður hægt að sjá bíósýningu á kvikmyndinni Matilda sem byggir að sjálfsögðu á frábærri sögu rithöfundarins Roald Dahl eins og söngleikur Borgarleikhússins.

Hér má sjá nánar um dagskrá Barnakvikmyndahátíðar: www.bioparadis.is/barnakvikmyndahatid

Facebook síða Barnakvikmyndahátíðar: www.facebook.com/barnakvikmyndahatid

Kynningarstikla Barnakvikmyndahátíðar (trailer)

 

Skoða fleiri fréttir